http://www.52.is/


LP international Poland latinoamerica Iceland    Hafa samband            Notendur: 20 Virkir, 5 Skráðir inn - Klukkan er: 00:45

ræræræ

Nýr á 52.is? Skráðu þig hér, ókeypis!
rss
Óska line-up fyrir High Stakes Póker
  Gudjon, Nov 30 2010

Mér finnst að það ætti að sleppa öllum nits eins og Lederer, Laak, Robl, Baxter og svoleiðis og donkunum líka. Sleppa frægu tournament spilurunum sem eru ekki jafn góðir í cash games, Negreanu, Hellmuth, Elky o.fl. Setja frekar bara alla klikkuðustu cash game spilarana.

Phil Ivey
Tom Dwan
Patrik Antonius
Ilari Sahamies
Lex Veldhuis
Eli Elezra
David Benyamine
Dario Minieri
David "Viffer" Peat

Síðan mættu Eric Liu, Antonio Esfandiari og Cyril Mouly (klikkaður spilari) vera á hliðarlínunni ef einhver skyldi hætta.



0 votes

Athugasemdir (23)


Næs :) 289$ fyrir Milestone hand!
  Gudjon, Sep 22 2010

Bætir alveg upp fyrir nokkur slæm kort á river! Fyndið hvernig það var flóð af spammi á borðinu eftir þetta Allt í einu fullt af random liði farið að fylgjast með. Það eru víst fleiri leiðir til að vera heppinn í póker en ég gerði mér grein fyrir!



0 votes

Athugasemdir (2)


Ekki spila of full... siríuslí..
  Gudjon, Mar 19 2010

Ratings á póker table ratings.com

Var að sjá þessa síðu... það sem stendur upp úr við að skoða þessa tölfræði er hversu mun betur gröfin á lægri borðunum líta út, en kannski helst ef litið er á "worst day" oct 11 2009: -460$

Semsagt, í heildina frá því ég byrjaði á pokerstars en þá var ég bara búinn að spila póker í nokkra mánuði er ég -314$... en þennan eina dag var ég mínus 460... getiði giskað á hvað gerðist?

hmm, auðvitað, það kemur fram í titlinum á færslunni.

Career Peak er tveimur dögum fyrr en þá hafði ég verið að multitabla 10/25 sent með góðum árangri og kominn yfir 800 dollara á reikningnum... svo fór ég á eitt gott fyllirí og var orðinn alveg hellað fullur... þúveist, þá meina ég svona reyna við ömmu sína og bjóða lögreglunni smók af jónu fullur...

Þar fyrir utan var búið að ganga þetta vel að hinn fulli ég taldi mig tilbúinn að taka yfir heiminn og opnaði 1-2$ og 2-4$ dollara borð, á þremur borðum í einu auðvitað...

Það er skemmst frá því að segja að þetta ævintýri fór ekki sérstaklega vel eins og sjá má á þessari tölfræði. Þetta eina blowout skilur á milli þess hvort ég sé "winning player" eða ekki...

Ég hugga mig þó við að ef ég held áfram að grinda ætti ég að geta komist í ágætan plús fljótlega, svo lengi sem ekkert svona endurtekur sig... vonandi að hinn ofurölvaði ég hafi lært lexíu sína...

Ég vil þó taka fram að í titlinum stendur "of" fullur... ég hef oft komist upp með að spila smá fullur... þegar ég er meðvitaður um að ég er smá fullur og legg ekki of mikið undir, þá hef ég jafnvel grætt og skemmt mér mjög vel. En það er lína sem maður hreinlega getur ekki farið yfir. Djammviskubitið verður aðeins of hart, ömmur eru lífsreyndar og skilningsríkar og sumar löggur reykja alveg jónur... en fólk skilar ekkert peningunum þínum bara því þú varst svo fullur...

Hér er svo mótatölfræðin mín sem inniheldur ekkert blowout... mig vantar klárlega að koma þessum 41% ML finishes yfir í late finishes... en annars ekki svo slæm tölfræði fyrir fyrsta árið mitt:

Ratings á offical poker rankings.com



0 votes

Athugasemdir (8)




Næsta síða


Höfundaréttur © 2012. 52.is Allur réttur áskilinn
Hafa samband Leiðarvísir